Orkunýting á Íslandi
Á Íslandi notum við nær eingöngu endurnýjanlega orkugjafa. Jarðvarmann nýtum við aðallega til húshitunar en einnig til raforkuframleiðslu en vatnsaflið er okkar helsti raforkuframleiðandi. Olíu notum við til að knýja áfram ýmsar vélar og tæki en olía eða jarðefnaeldsneyti er eina innflutta orkan.
Íslendingar nota gríðarlega mikla orku en orkunotkun á hvern íbúa er með því mesta sem þekkist og hlutfall endurnýjanlegrar orku er miklu hærra en hjá öðrum þjóðum.
Við höfum ekki enn nýtt allar orkulindir Íslands en þær eru þó ekki óþrjótandi. Rammaáætlun er verkfæri sem við höfum til þess að halda utan um þær náttúruauðlindir sem við höfum og aðstoða hagsmunaaðila, sem annars vegar vilja virkja landsvæði og hins vegar vilja vernda náttúruna, að finna leiðir út úr ágreiningnum.
Við nýtingu orkulinda á Íslandi er hugtakið sjálfbærni haft að leiðarljósi en það þýðir að orkulindir eru nýttar í takt við endurnýjun þeirra. Það má semsagt ekki taka meira af orkulindinni en hún nær að búa til. Jarðhiti og vatnsorka eru flokkaðar sem endurnýjanlegar orkulindir en hafa verður í huga að jarðhitinn endurnýjast frekar hægt.