top of page

Stök verkefni

Hér eru stök verkefni, þau sömu og í heildstæðu þemaverkefni, en þeim er raðað upp eftir kennslufræðilegri nálgun eða hvernig nemendur vinna verkefnin. 

Hér má finna hugmyndir að hugtakakortum, ritunarverkefnum, veggspjöldum og glærukynningum/skjákynningum sem hægt er að grípa í eitt og eitt í tengslum við vinnu með orku og umhverfi.

20190928_154524.jpg
Hugtakagreining | 

Að vinna með hugtök í náttúrufræðum er mjög mikilvægt en hugtakagreining er aðferð sem gott er að nota til að auka þekkingu og skilning á hugtökum. Best er að nota lykilhugtök úr því námsefni sem unnið er með en hugtakagreining felur í sér að skoða vandlega hugtök og greina merkingu þeirra, hvað hugtökin fela i sér og hvað ekki.

Ritun| 

Ritun og læsi eru tengd órjúfanlegum böndum og eru fræðimenn sammála um það að ritun efli bæði gagnrýna hugsun og nám. Ritun reynir á nemandann en hún krefst einbeitingar og skarprar athygli og reynir á rökræna ígrundun og skapandi hugsun.

Hér fyrir neðan eru hugmyndir að ritunum sem eru fengnar af blaðsíðunum Í brennidepli sem fylgja hverjum kafla í eðlisfræðibókum Litrófi náttúrunnar sem Menntamálastofnun gefur út. 

20190723_223813.jpg
Læsi | 

Forsenda lesskilnings er orðskilningur en ritmálið er meðal annars það sem auðgar orðaforða barna. Öll verkefnin hér á síðunni eru gerð með það að markmiði að efla læsi með ýmis konar vinnu. 

Umræður og útskýringar samhliða lestri styrkja orðaforðann meira en ef það er bara lesið. Að vinna með texta á virkan hátt hjálpar nemendum að flétta saman mikilvæga þætti sem góðir lesarar nota. 

Hér fyrir neðan er hugmynd að verkefni sem unnið er í anda aðferðarinnar gagnvirkur lestur.

Umræður | 

Umræður er mikilvæg kennsluaðferð í nútíma skólastarfi en markmiðið er að nemendur geti skipst á skoðunum og rökrætt eða velt fyrir sér mismunandi hliðum tiltekins máls. Það er því mikilvægt að nemendur fái tækifæri til þess að taka þátt í málefnalegum umræðum sem eru þó að einhverju leiti stýrt af kennara.

20190330_130206.jpg
Veggspjald | 

Veggspjöld eru oft vinsæl hjá nemendum en með því að gera þau fær nemandinn að vinna skapandi vinnu ásamt því að þurfa að leggjast í heimildavinnu um viðfangsefnið. 

​Hér fyrir neðan eru hugmyndir að verkefnum sem nemendur geta skilað sem veggspjöldum. 

20190626_223328.jpg
Skjákynningar | 

Skjákynningar er ein leið sem gagnast nemendum þegar þeir kynna verkefnin sín. Kynningin byggist þá á texta sem nemendur hafa gert sjálfir og myndskreytt. 

Skjákynningar bjóða upp á ýmsa möguleika en í þeim geta nemendur leyft sköpunargleðinni að njóta sín en gæta þarf þess að skraut og hrif skyggi ekki á aðal innihald textans. 

Inni í skjákynningu er hægt að setja t.d. myndir, myndbönd, gröf, hljóðupptökur, hreyfimyndir og teikningar, möguleikarnir eru margir. 

Ákveðin regla gildir um uppbyggingu skjákynningar en ef texti er aðal uppistaðan er oft miðað við 7x7 eða 6x6 regluna sem þýðir að textinn á hverri skjámynd á ekki að fara yfir 7 línur og 7 orð í línu eða 6 línur og 6 orð í línu.

​Hér fyrir neðan eru hugmyndir af verkefnum sem hægt er að vinna sem skjákynningar. 

bottom of page