Hæfniviðmið
Hæfnin í náttúrugreinum felst bæði í viðhorfum til náttúru, samfélags, umhverfis og tækni og í þekkingu og leikni.
Hæfniviðmiðunum er skipt í tvo flokka, annars vegar hæfniviðmið um verklag og hins vegar hæfniviðmið um viðfangsefni. Nauðsynlegt er að viðfangsefnin tengist og fléttist saman.
Hæfniviðmið um verklag
Geta til aðgerða
Að nemandi geti greint stöðu mála í eigin umhverfi og aðdraganda þess, í framhaldi skipulagt þátttöku í aðgerðum sem fela í sér úrbætur.
Að nemandi geti tekið þátt í og útskýrt reynslu sína og niðurstöðu af þátttöku í aðgerðum sem varða náttúru og samfélag.
Að nemandi geti tekið rökstudda afstöðu til málefna og komið með tillögur um hvernig megi bregðast við breytingum en um leið tekið mið af því að í framtíðinni er margt óvisst og flókið.
Gildi og hlutverk vísinda og tækni
Að nemandi geti beitt algengustu hugtökum og heitum í náttúrugreinum unglingastigsins.
Að nemandi geti unnið með samþætt viðfangsefni með vinnubrögðum náttúrugreina og tekið gagnrýna afstöðu til siðferðislegra þátta tengdum náttúru, umhverfi, samfélagi og tækni.
Vinnubrögð og færni
Að nemandi geti lesið texta um náttúrufræði sér til gagns, umorðað hann og túlkað myndefni honum tengt.
Að nemandi geti aflað sér upplýsinga um náttúruvísindi úr heimildum á íslensku og erlendum málum.
Að nemandi geti gefið skýringar á og rökrætt valið efni úr athugunum og heimildum.
Ábyrgð á umhverfinu
Að nemandi geti skoðað og skráð atburði eða fyrirbæri sem snerta samspil manns og umhverfis, í framhaldi tekið virkan þátt í gagnrýnni umfjöllun um málið og gert tillögur um aðgerðir til bóta.
Að nemandi geti tekið þátt í að skoða og skilgreina stöðu umhverfismála á heimsvísu og rætt um markmið til umbóta.
Hæfniviðmið um viðfangsefni
Að búa á jörðinni
Að nemandi geti útskýrt og rætt ástæður náttúruverndar.
Að nemandi geti útskýrt breytingar á landnotkun og tengsl þeirra við orkuframleiðslu.
Lífsskilyrði manna
Að nemandi geti lýst flæði orku í náttúrunni.
Náttúra Íslands
Að nemandi geti lýst ólíkum leiðum við framleiðslu, dreifingu og nýtingu orku á Íslandi.