Þemaverkefni
Hér er verkefnunum raðað upp sem heildstæðu þemaverkefni um orku, orkunýtingu og orkuöflun. Verkefnunum er raðað upp eftir því hvernig best er að vinna þau en tímaramminn er í höndum hvers kennara þar sem aðstæður geta verið mismunandi. Verkefnin byrja á hugtakavinnu um orku, orkuform og orkuumbreytingu en þróast yfir í verkefni tengd orkuöflun, orkunýtingu og umhverfinu. Fyrstu verkefnin eru einstaklingsverkefni en neðstu verkefnin eru stærri hópaverkefni.
Verkefnin gera ráð fyrir að notaðar séu námsbækurnar Eðlisfræði 2 og Eðlisfræði 3, Eðlis- og stjörnufræði I og Auðvitað heimilið. Einnig er gert ráð fyrir að nemendur afli sér áreiðanlegra heimilda á netinu.
Vinnubók
Best er að hver og einn nemandi búi til sína vinnubók þar sem öllum verkefnunum er safnað saman á einn stað. Þannig verður vinnubókavinna einhvers konar yfirverkefni í þemavinnunni. Í upphafi hvers verkefnis skal hafa í huga hver lykilhugtökin eru og byrja á því að vinna með þau í ýmis konar hugtakagreiningarvinnu ásamt umræðum um efnið.
sem koma fyrir í efninu
glíma
Orkuform
Orka er mjög sérstakt fyrirbæri sem umvefur okkar daglega líf. Við sjáum ekki orku og getum ekki snert hana en finnum stundum fyrir áhrifum hennar.
Orka hefur mismunandi birtingarmyndir sem kallast orkuform og í þessu verkefni skoðum við þau betur.
Ritun
Umbreyting á orku
Orka getur breyst úr einu orkuformi í annað. Þegar orka breytist úr einu formi í annað tölum við um umbreytingu á orku.
Í þessu verkefni gera nemendur sér grein fyrir því hvernig umbreytingunni er háttað.
Ritun
Ritun
Endurnýjanleg orka - óendurnýjanleg orka
Þegar talað er um orkunýtingu er talað um endurnýjanlega orkugjafa og óendurnýjanlega orkugjafa. Til þess að nemendur geti dýptað þekkingu sína á orku og umhverfismálum er nauðsynlegt fyrir þá að þekkja þessi hugtök.
Í þessu verkefni skoða nemendur þessi fyrirbæri og hvað felst í þeim.
Orkuöflun á Íslandi
Þegar við látum renna í heitt bað eða förum í heita sturtu hvaðan kemur allt þetta heita vatn? Við kveikjum ljós, horfum á sjónvarpið og förum í tölvuna án mikillar fyrirhafnar en hvaðan kemur allt þetta rafmagn? Hvaðan fáum við orkuna sem við nýtum á Íslandi?
Í þessu verkefni munu nemendur skoða hvaðan við fáum orkuna sem við nýtum á Íslandi.
Virkjanir
Einstaklingsverkefni þar sem hver nemandi velur sér eina virkjun, vatnsafls- eða jarðvarmavirkjun og skrifar um hana.
Í gulu kúlunni er listi af virkjunum víða um land sem hægt er að styðjast við þegar velja skal virkjun.
Orkunýting á Íslandi
Hópaverkefni
Orkunotkun og orkuframleiðsla hefur áhrif á umhverfið okkar. Það skiptir Íslendinga miklu máli hvernig orka er framleidd en ekki síður hvernig hún er nýtt.
Í þessu verkefni munu nemendur skoða hvernig orkunýting er á Íslandi.
Orka og umhverfi
Hópaverkefni
Hvers vegna þurfum við að horfa til mismunandi orkugjafa þegar við hugum að umverfismálum? Orkuöflun mannkyns er mesta hagsmunamál framtíðarinnar en mörg ríki heimsins hafa tekið höndum saman og skuldbundið sig til þess að huga betur að umhverfisvænum leiðum í orkumálum.
Í þessu verkefni eiga nemendur að skoða hvers vegna endurnýjanleg orka er framtíðin og hvers vegna óendurnýjanleg orka er talin hafa neikvæðar afleiðingar á loftlagsbreytingar.
Ritun
Ritun
Getum við selt orku til annarra landa?
Hópaverkefni
Í mörg ár hefur verið áhugi á því að skoða hvort gerlegt og hagkvæmt sé að leggja rafstreng (sæstreng) til Bretlandseyja eða meginlands Evrópu og selja raforku þangað í staðin fyrir að selja raforku fyrst og fremst til stóriðju á Íslandi.
Í þessu verkefni þurfa nemendur að taka afstöðu með álitamáli sem mikið hefur verið í umræðunni hér á landi. Verkefnið er í formi ritunar en ýmsir möguleikar eru á því að vinna það t.d. væri hægt að útbúa málþing, eða rökræður milli tveggja hópa.
Orkuauðlindir Íslands
Hópaverkefni
Í raun getum við sagt að við Íslendingar séum mjög heppin hvað varðar orkuöflun hér á landi og þar kemur jarðfræðin til sögunnar. En vegna þess hve ungt landið okkar er og að hér eru virk eldfjöll og eldstöðvar og jöklar höfum við nóg af vatni og jarðhita.
Í þessu verkefni munu nemendur vinna með texta og æfa lestur á fræðitexta.
Orkumál á Íslandi - hagsmunamál
Hópaverkefni
Deilt um orkuna
Á heimasíðunni nano.náttúrutorg.is má finna námsefni í náttúrufræði og raunvísindakennslu.
Meðal annars er þar að finna námsefni um orku og verkefnið Deilt um orkuna.
Verkefnið er í formi málþings sem nemendur undirbúa með því að kynna sér efnið, lykilhugtök, fréttagreinar og fyrirtækið Landsvirkjun.
Nemendum er kynnt ákveðin forsaga og hverjum hópi er úthlutað einni persónu sem hann þarf að skapa og kynna sér stöðu hennar innan sögusviðsins.
Hér er linkur á verkefnið sem gæti orðið mjög lærdómsríkt því nemendur vinna með raunverulegt álitamál þar sem mismunandi hagsmunir rekast á og þarf að leysa ágreininginn á sem farsælastan hátt.
Í fylgiskjali 1 er verkefnablað fyrir nemendur sem hjálpar til við undirbúning.
Í fylgiskjali 2 er viðmiðunarrammi fyrir mat á verkefninu.