top of page

Verkefnin

Verkefnin á síðunni eru þau sömu en þeim er raðað upp á tvær undirsíður. Annars vegar undir Heildstætt þemaverkefni og hins vegar undir Stök verkefni.

Heildstætt þemaverkefni

Á þessari síðu er verkefnunum raðað upp sem heildstætt efni eins og best er að vinna það ef vinna á þemað Orkuöflun og orkunýting á Íslandi. Uppbyggingin á þemaverkefninu er þannig að fyrstu verkefnin byrja á hugtakavinnu um orku, orkuform og orkuumbreytingu en þróast svo yfir í verkefni tengd orkuöflun, orkunýtingu og umhverfinu. Fyrstu verkefnin eru einstaklingsverkefni en stærri verkefnin eru hópaverkefni.

Með nokkrum verkefnum eru hugmyndir að ritunarverkefnum en það er val hvers og eins hvort þau eru unnin með þemaverkefninu. Einnig væri hægt að senda þau heim sem heimanám samhliða vinnu í skóla.

Stök verkefni

Á þessari síðu er verkefnunum raðað upp eftir því hvernig þau eru unnin. Verkefnin eru þau sömu og í heildstæðu þemaverkefni en þeim er raðað upp eftir kennslufræðilegri nálgun og þannig má á auðveldan hátt finna hugmyndir t.d. að ritunarverkefnum, hugtakakortum, veggspjöldum eða glærukynningum/skjákynningum og verkefni tengd lestri texta. 

bottom of page