top of page

Vindorka

Orkan í vindinum

Vindorka verður til við hreyfingu loftmassa og á uppruna sinn í varma frá

sólinni og svigkrafti jarðar. Að beisla vindinn til orkunotkunar er alls ekki

nýtt af nálinni en menn hafa frá alda öðli virkjað vindorkuna til að knýja t.d. skip og vindmyllur til hveitimölunar og vatnsdælingar.

Litlar vindrafstöðvar voru algengar við sveitabæi landsins áður en Íslendingar tengdust sameiginlegu raforkukerfi. Að beisla vind er dýrt í upphafi en þegar vindmyllurnar eru komnar upp nýta þær ókeypis og ótæmandi orkuauðlind en til að fullnægja orkuþörf heimsins þyrfti landsvæði sem samsvarar tuttuguföldu flatarmáli Íslands.

 

Vindrafstöðvar eru umdeildar vegna þess að þær eru áberandi í landslagi og geta haft áhrif á fuglalíf.

20190330_133219.jpg

Hafið - vindafl

Uppi á hraunsléttunni norðan við Búrfellsvirkjun á svæði sem nefnist Hafið, hefur Landsvirkjun reist tvær vindmyllur í tilraunastarfsemi til þess að vinna orku úr vindi. Verkefnið hefur gengið vel en vinnsla úr orku á vindi fer vel saman við vatnsafl því það er meiri vindur á landinu yfir vetrartímann þegar minna rennsli er í ánum. 

Við getum búist við að vindorka verði beisluð í meira mæli í framtíðinni en vindur er dæmi um endurnýjanlegan orkugjafa sem nóg er af.

bottom of page