Til kennara
Þessi kennsluhugmyndavefur inniheldur kennsluhugmyndir með viðfangsefnin orka, orkuöflun og orkunýtingu að leiðarljósi.
Í kennsluhugmyndunum má finna fjölbreytt verkefni eins og hugtakakort, krossorðaglímur, veggspjöld, glærukynningar, læsisverkefni, umræður og ritanir og eru verkefnin eru bæði einstaklings- og hópaverkefni.
Yfirverkefni
Til þess að halda utan um hugtakavinnuna er best að byrja á því að láta nemendur búa til vinnubók þar sem öllum verkefnunum er safnað saman. Þetta er bæði hægt að vinna í stílabók, láta nemendur hanna vinnubók, rafræna eða á pappír eða safna saman verkefnum í möppu.
Ég mæli með því að í upphafi hvers verkefnis fari fram umræða og hugtakavinna sem nemendur setja í möppuna.
Markmið verkefnanna er að efla nemendur í læsi og hugtakaskilningi jafnframt því að gera þá meðvitaða um misjöfn orkuform, hvaðan við fáum orku á Íslandi, hvernig hún er nýtt og hverjir helstu orkugjafarnir eru. Hugmyndin er að nemendur átti sig á umhverfisáhrifum orkuöflunar og nýtingar og geri sér grein fyrir framtíðarlausnum í orkumálum þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi með bættri orkunýtni og orkuframleiðslu.
Áherslan er því á hugtakaskilning og lestur á fræðitexta úr námsbókum og af upplýsingasíðum á netinu.
Forhugmyndir og forþekking barna skipta miklu máli í náttúrufræðikennslu og er það hlutverk kennarans að átta sig á forþekkingu nemenda á viðfangsefninu. Það er hægt að gera í upphafi verkefnisins með umræðum um viðfangsefnið og velta upp spurningunum:
-
Hvað vita nemendur nú þegar um orku og orkunotkun á Íslandi?
-
Hvað langar þá að vita meira um orku og orkunotkun á Íslandi?
Með þessum hætt er námstækniaðferðin KVL (Kann - vil vita - hef lært) nýtt. Hafa skal í huga að hugsanlega þarf kennarinn að leiða nemendur áfram með vísbendingum til þess að ná fram því sem þeir kunna.
Heildstætt þemaverkefni og stök verkefni
Undirsíðurnar undir tenglinum verkefnin innihalda verkefnin. Þetta eru sömu verkefnin en þeim er raðað upp á tvennan hátt, annars vegar sem heildstæðu þemaverkefni en hins vegar sem kennslufræðilegri nálgun eða vinnuaðferðum nemenda.
Uppbyggingin á verkefnunum í heildstæðu þemaverkefni er hugsuð þannig að hægt er að vinna þau markvisst frá byrjun til enda þar sem þau byrja á hugtakavinnu um orku, orkuform og orkuumbreytingu en þróast svo yfir í verkefni tengd orkuöflun, orkunýtingu og umverfinu.
Fyrstu verkefnin eru einstaklingsverkefni og byggja mest á hugtakaskilningi en hópaverkefnin eru búin til með grunnþáttinn sjálfbærni í huga og snúa að álita- og ágreiningsmálum sem snerta orku og umhverfi.
Í stöku verkefnunum geta kennara gripið eitt og eitt verkefni og unnið í tengslum við umræður eða lestur um viðfangsefnið orku, orkunöflun og orkunýtingu.
Námsmatið byggir á leiðsagnarnámi og eru matslistar sem hægt er að prenta út á pdf formi. Námsmatið byggir á jafningjamati og sjálfsmati ásamt mati kennara sem fylgist með vinnu nemenda og er til ráðgjafar og aðstoðar.